Lungnadeild A6 á Landspítala Fossvogi uppfyllir markmið gæðastaðals um byltuvarnir.
Innleiðing á verklagi byltuvarna á Landspítala stendur yfir. Lungnadeild A6 í Fossvogi hefur nú náð þeim mikilvæga árangri að uppfylla öll markmið gæðastaðals byltuvarna.
Undanfarin ár hafa 700 til 800 inniliggjandi sjúklingar á Landspítala hlotið byltu ár hvert samkvæmt atvikaskráningu. Byltur geta haft alvarlegar afleiðingar í för með sér og þeim fylgir mikill kostnaður. Aðgerðir í byltuvörnum á Landspítala eru byggðar á gagnreyndri þekkingu og vinnulag er skráð í gæðaskjöl í gæðahandbók spítalans.
Gæðastaðall byltuvarna á Landspítala er fjöldi byltna á 1000 legudaga. Byltur á 1000 legudaga á Landspítala voru 5,0 þann 1. júní 2023.
Markmið gæðastaðals byltuvarna eru:
A. Byltur verði < 4,0 á 1000 legudaga
B. Enginn sjúklingur hljóti alvarlegar afleiðingar af byltu
C. Enginn sjúklingur detti endurtekið í legu á sömu deild.