Fyrsta skóflustunga var tekin að nýju húsi heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands á lóð Landspítala við Hringbraut 4. júlí 2023.
Hið ný hús mun gjörbylta aðstöðu til kennslu og rannsókna í heilbrigðisvísindum en í því sameinast nær allar deildir heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands í nýrri rannsóknar- og kennslubyggingu. Húsið rís við Læknagarð, sem hýsir nú hluta af starfsemi heilbrigðisvísindasviðs, og verður því nátengt nýbyggingarsvæði Landspítala við Hringbraut. Það verður hátt í 10 þúsund fermetrar að flatarmáli.
Frumathugun á nýju húsnæði fyrir heilbrigðisvísindi innan Háskóla Íslands hófst árið 2005 og á þeim hartnær tuttugu árum sem eru liðin hafa ýmsir vinnuhópar innan HÍ og víðar komið að hönnun kennslurýma, rannsóknarstofa og skrifstofurýma. Núverandi útfærsla á húsnæðinu er því afrakstur áralangrar þróunar og vinnu sem efla mun kennslu, rannsóknir og nýsköpun á sviði heilbrigðisvísinda.
Fyrstu skóflustunguna tóku eftirtalin:
- Jón Atli Benediktsson rektor
- Unnur Þorsteinsdóttir forseti heilbrigðisvísindasviðs
- Sigríður Helga Kárdal Ásgeirsdóttir og Daníel Thor Myer, nemar og bæði í sviðsráði heilbrigðisvísindasviðs og í stúdentaráði HÍ
- Ásdís Halla Bragadóttir, ráðuneytisstjóri háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins, en hún tók skóflustunguna í fjarveru Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur ráðherra
- Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala fyrir hönd spítalans
„Þetta er mikill gleðidagur,“ sagði Jón Atli Benediktsson rektor HÍ við athöfnina. „Við höfðum sett okkur það markmið í stefnu skólans að ljúka við byggingu húsnæðis fyrir heilbrigðisvísindasvið HÍ og því er það einkar ánægjulegt að finna þann upptakt sem er í verkinu. Á fáum sviðum starfar Háskóli Íslands jafn náið með atvinnulífinu og á sviði heilbrigðismála og Landspítali er okkar stærsti og nánasti samstarfsaðili. Í húsinu munum við mennta stóran hluta þess fólks sem sinnir afar brýnum störfum í heilbrigðiskerfinu á Íslandi. Það er því afar gleðilegt að hér verður aðstaða til kennslu og rannsókna sambærileg við það sem best gerist á heimsvísu.“
Ásdís Halla Bragadóttir, ráðuneytisstjóri háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins, sagði að frá stofnun nýs ráðuneytis hefði rík áhersla verið lögð á að styðja við uppbyggingu heilbrigðisvísinda, gæði náms og fjölgun nemenda í heilbrigðisvísindum. Nýja húsið væri einn mikilvægasti hlekkurinn í því. „Ætlunin er að fjölga nemendum í læknisfræði úr 60 í 90 í nokkrum skrefum til 2028 og hjúkrunarfræðinemum úr 120 í 150 í HÍ. Með nýrri aðstöðu verður jafnframt hægt að bæta námið, auka gæðin, efla rannsóknir, vísindi og nýsköpun.“ Hún sagði enn fremur að hröð öldun þjóðarinnar kallaði ekki einungis á mun fleiri útskrifaða nemendur í heilbrigðisvísindum heldur einnig á aukna nýsköpun í heilbrigðisþjónustu sem ný og betri aðstaða eigi að geta ýtt undir. „Dagurinn í dag er mikilvægur áfangi á þeirri vegferð.“
Unnur Þorsteinsdóttir forseti heilbrigðisvísindsviðs sagði von allra að það umhverfi sem skapist í nýja húsinu muni verða þjóðinni allri til heilla. „Sameining eininga á sviði heilbrigðisvísinda undir einu þaki mun leiða til meiri samvinnu þvert á þær allar jafnt í kennslu sem rannsóknum. Stoðþjónusta deilda og sviðs sameinast hér í öfluga heild sem vinnur þvert á deildir. Þegar fjölbreytt starfsemi sviðsins er komin undir sama þak má gera ráð fyrir enn frekari grósku og nýsköpun á sviði heilbrigðisvísinda enda mun húsnæðið halda vel utan um þann mannauð sem býr á sviðinu. Þeir miklu rannsóknarinnviðir sem hafa verið að byggjast upp í lífvísindum á undanförnum árum munu einnig vera undir sama þaki í nýju „Heilbrigðisvísindahúsi“ sem mun leiða til betri nýtingar tækja og efla samvinnu og gæði rannsókna í lífvísindum,“ sagði Unnur.
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala sagði það mikið fagnaðarefni að nú hilli loks undir að framkvæmdir hefjist við nýtt hús heilbrigðisvísindasviðs á Hringbrautarlóðinni. „Um tvö þúsund nemendur í heilbrigðisvísindagreinum stunda nám og sækja þjálfun sína á Landspítala. Þá eru margir sameiginlegir starfsmenn beggja stofnana. Hús heilbrigðisvísindasviðs á ekki aðeins eftir að styrkja þessa nánu samvinnu Landspítala og Háskóla Íslands við að mennta fólk til starfa í heilbrigðisþjónustu heldur einnig efla vísindastarfsemi stofnanna. Hlutverk Landspítala sem háskólasjúkrahús styrkist án efa mikið með sameiningu heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands í hinu nýja húsi við Hringbraut,“ sagði Runólfur forstjóri sem jafnframt er prófessor við læknadeild HÍ.
- Nýbyggingin mun tengjast Læknagarði sem verður jafnframt endurgerður. Húsnæðið verður sérhannað miðað við þarfir sviðsins, kennslu- og rannsóknaraðstaða verður eins og best verður á kosið. Við hönnun er tekið mið af ólíkum notendahópum og er áhersla lögð á sveigjanleika í nýtingu rýma, algilda hönnun, góða hljóðvist, dagsbirtu og innivist s.s. loftræsingu og hitastig.
- Hönnuðir eru Verkís verkfræðistofa, TBL arkitektar og JCA arhcitecture. Framkvæmdir hefjast fljótlega og er áætlað að húsið verði tilbúin til notkunar í lok árs 2026. Stefnt er að því að endurbótum á Læknagarði ljúki um áramótin 2027-2028. Gert er ráð fyrir að starfsemi heilbrigðisvísindasviðs verði að hluta flutt í nýju bygginguna áður en hafist verður handa við endurgerð Læknagarðs. Er það gert til að halda samfellu í starfi sviðsins. Eirberg, sem frá upphafi hefur hýst hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild HÍ á Landspítalalóðinni, verður nýtt áfram af sviðinu eftir því sem þörf krefur.