Helga Guðrún Hallgrímsdóttir hefur verið ráðin ótímabundið sem deildarstjóri skurðstofa á Landspítala Hringbraut frá 1. september 2023.
Helga Guðrún er hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands. Hún lauk diplómanámi í skurðhjúkrun 2005 og meistarnámi í skurðhjúkrun árið 2008 frá sama skóla. Hún hlaut sérfræðiréttindi í skurðhjúkrun árið 2011.
Helga hefur starfað sem deildarstjóri skurðstofu Hringbrautar síðastliðin fimm ár, þar áður var hún deildarstjóri skurðstofu 12CD í eitt ár. Auk þess var hún áður aðstoðardeildarstjóri þar frá árinu 2009.
Helga hefur viðtæka reynslu í hjúkrun á Landspítala. Auk þess hefur hún verið staðgengill framkvæmdarstjóra í Þjónustumiðstöð rannsóknaverkefna hjá Íslenskri erfðagreiningu. Hún hefur komið að kennslu við Háskóla Íslands í skurðhjúkrun, grunnnámi í hjúkrun og geislafræði.