Vegna framkvæmda tengdum tengigöngum við nýjan meðferðarkjarna Landspítala hefur verið ákveðið að loka tímabundið Hrafnsgötu. Gatan liggur fyrir framan gömlu aðalbyggingu Landspítala og er einstefnugata frá austri til vesturs.
Við vesturenda gamla spítalans eru nokkur bílastæði og verða þau aðgengileg áfram frá götu sem liggur meðfram kvennadeildahúsinu.
- Áætlað er að Hrafnsgata verði lokuð bílaumferð út september 2023 en hægt verður að ganga um hana.
- Á myndinni er Hrafnsgata merkt með gulum hring alveg upp við við gamla spítalann.