Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður lækna innan þeirra greina lækninga þar sem viðurkennt sérnám fer fram á Landspítala og á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi.
Upphafsdagur ráðningar í sérnámsstöðurnar er 27. febrúar 2024 en þann dag er móttökudagur, annars getur upphaf starfs verið samkvæmt samkomulagi við kennslustjóra hverrar sérgreinar fyrir sig.
Sérnám fer að mestu leyti fram á Landspítala en einnig á Sjúkrahúsinu á Akureyri í flestum greinum. Ef samvinna hefur verið staðfest milli LSH og SAk um sérnám í viðkomandi sérgrein er gert ráð fyrir að sérnámslæknar vinni á báðum stöðum. Það sérnám sem hér er auglýst eru einu sérnámsleiðir viðkomandi greina á Íslandi sem samþykktar hafa verið af mats- og hæfnisnefnd í samræmi við reglugerð 856/2023. Sérnám samræmist viðurkenndri marklýsingu viðkomandi greinar og fylgir vönduðu mats- og handleiðslukerfi þjálfaðra handleiðara.
Doktorsnám er mögulegt samhliða klínísku sérnámi. Ef fyrir liggur samþykkt rannsóknaráætlun fyrir doktorsnám getur umsækjandi sótt um slíka stöðu. Að lágmarki væri þá um 50% ráðningu við Landspítala að ræða eða eftir samkomulagi og klínískt sérnám lengt sem því nemur og í samræmi við reglugerð 856/2023. Taka skal óskir um slíkt sérstaklega fram í athugasemdum við umsókn og í kynningarbréfi.
Nánari upplýsingar
- Almennt kynningarmyndband hér fyrir neðan um sérnám í læknisfræði
- Vefsíða um sérnám lækna á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri - smella hér.
Umsóknir
- Sótt er um sérnámið á Starfatorgi með því að smella á viðkomandi hlekk í listanum hér að neðan.
- Ef umsækjandi ætlar að sækja um fleiri en eina sérgrein þarf að sækja um hverja og eina í aðskildri umsókn.
• Almennar lyflækningar – fullt sérnám fyrri hluti
• Almennar lyflækningar – seinni hluti
• Barnalækningar – hlutasérnám
• Barna- og unglingageðlækningar – fullt sérnám
• Bráðalækningar – fullt sérnám
• Bæklunarskurðlækningar – fullt sérnám fyrri og seinni hluti
• Endurhæfingalækningar - hlutasérnám
• Geðlækningar - fullt sérnám
• Háls-, nef- og eyrnalækningar
• Kjarnanám í almennum skurðlækningum - hlutasérnám
• Meinafræði – hlutasérnám
• Myndgreining / röntgenlækningar - hlutasérnám
• Svæfinga- og gjörgæslulækningar - hlutasérnám
• Réttarlæknisfræði- hlutasérnám
• Taugalækningar – hlutasérnám
• Öldrunarlækningar
Almennar upplýsingar: Gunnar Thorarensen, yfirlæknir sérnáms – gunnarth@landspitali.is