Magdalena Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin yfirlæknir Endurhæfingarlækninga frá 1.nóvember 2023.
Magdalena lauk embættisprófi í læknisfræði 1993 frá læknadeild Háskóla Íslands og Diploma in Tropical Medicine and Hygiene frá London School of Hygiene and Tropical Medicine 1998. Hún stundaði sérfræðinám á Sahlgrenska háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg og lauk þaðan sérfræðinámi í lungnalækningum 2005.
Magdalena starfaði sem sérfræðingur og yfirlæknir á Reykjalundi árabilið 2006-2021 ásamt því að stunda nám í endurhæfingarlækningum og hlaut sérfræðiviðurkenningu sem endurhæfingarlæknir 2019. Hún hóf störf á Grensásdeild Landspítala í janúar 2022, fyrst sem sérfræðilæknir og yfirlæknir tímabundið frá 1.september 2022 - 1.nóvember 2023