Á bráðamóttökunni í Fossvogi er þessa stundina mikið álag og margir sem bíða eftir þjónustu. Það er því rík ástæða fyrir fólk sem er ekki í bráðri hættu að hringja fyrst í 1700 eða leita upplýsinga á netspjalli Heilsuveru áður en leitað er þangað.
Á bráðamóttökunni er forgangsraðað eftir bráðleika. Við aðstæður eins og nú eru getur fólk sem ekki er í bráðri hættu því þurft að bíða lengur en annars eftir þjónustu. Ef því verður mögulega við komið er þess vegna æskilegt að reyna að leita annað.