Nýlega féll endalegur dómur fyrir sænskum dómstólum í máli Paolo Macchiarini, ítalska skurðlæknisins sem framkvæmdi svokallaðar plastbarkaaðgerðir á sjúklingum á Karolinska-háskólasjúkrahúsinu með þeim afleiðingum að sjúklingarnir létust. Macchiarini var sakfelldur fyrir alvarlega líkamsárás og hefur Hæstiréttur Svíþjóðar synjað beiðni um áfrýjun dómsins.
Í dóminum kemur fram að aðgerðirnar hafi ekki byggt á viðunandi vísindalegum og klínískum grunni. Í framhaldinu hefur umræða skapast bæði í innlendum og erlendum fjölmiðlum þar sem fjallað er um niðurstöðu dómsins í víðara samhengi.
Landspítali hefur í kjölfar niðurstöðu sænskra dómstóla tekið málið til umfjöllunar að nýju með hliðsjón af þætti spítalans í meðferð fyrsta sjúklingsins sem undirgekkst þessa aðgerð, Andemariam Beyene. Lögmaður ekkju Andemariam Beyene hefur sent forstjóra spítalans erindi þar sem hann óskar þess að Landspítali kynni erindið fyrir ríkislögmanni og sátt verði gerð um bætur til handa ekkjunni með hans aðkomu.
Forstjóri Landspítala telur rétt að upplýsa starfsmenn spítalans um að hann harmar aðkomu stofnunarinnar að málinu, að sjúklingi spítalans hafi verið vísað í meðferð á erlendu sjúkrahúsi þar sem framkvæmd var tilraunaaðgerð, án þess að viðeigandi undirbúningsrannsóknir hafi farið fram, með þeim afleiðingum að sjúklingurinn lést.
Forstjóri hefur átt samskipti við ekkju sjúklingsins og beðið hana afsökunar á hlut spítalans í málinu. Þá hefur forstjóri orðið við beiðni lögmanns ekkjunnar og beint erindi um skaðabætur til ríkislögmanns, en embætti ríkislögmanns er það stjórnvald sem lögum samkvæmt hefur heimildir til þess að semja um slíkar bætur fyrir hönd ríkisins.