Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður lækna innan þeirra greina lækninga þar sem viðurkennt sérnám fer fram á Landspítala og á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er 3. júní 2024 en þriðjudaginn 4. júní er móttökudagur sérnáms, annars getur upphaf starfs verið samkvæmt samkomulagi við kennslustjóra hverrar sérgreinar fyrir sig.
Sérnám í læknisfræði á Íslandi hefur þróast hratt á undanförnum árum. Nú er veitt sérnám í flestum grunngreinum lækninga á Íslandi í samræmi við alþjóðleg gæðaviðmið.
Sérnám fer að mestu leyti fram á Landspítala en einnig á Sjúkrahúsinu á Akureyri í flestum greinum. Ef samvinna hefur verið staðfest milli LSH og SAk um sérnám í viðkomandi sérgrein er gert ráð fyrir að sérnámslæknar vinni á báðum stöðum. Það sérnám sem hér er auglýst eru einu sérnámsleiðir viðkomandi greina á Íslandi sem samþykktar hafa verið af mats- og hæfnisnefnd í samræmi við reglugerð 856/2023. Sérnám samræmist viðurkenndri marklýsingu viðkomandi greinar og fylgir vönduðu mats- og handleiðslukerfi þjálfaðra handleiðara.
Doktorsnám er mögulegt samhliða klínísku sérnámi. Ef fyrir liggur samþykkt rannsóknaráætlun fyrir doktorsnám getur umsækjandi sótt um slíka stöðu. Að lágmarki væri þá um 50% ráðningu við Landspítala að ræða eða eftir samkomulagi og klínískt sérnám lengt sem því nemur og í samræmi við reglugerð 856/2023. Taka skal óskir um slíkt sérstaklega fram í athugasemdum við umsókn og í kynningarbréfi. Samþykkt rannsóknaráætlun doktorsnáms skal fylgja með umsókn.
Nánari upplýsingar
- Almenn kynningarmyndbönd um sérnám í læknisfræði fyrir Landspítala og Sjúkrahúsið á Akureyri (ATH. er einnig að finna hér neðan).
- Vefsíða um sérnám lækna á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri
Umsóknir
- Sótt er um sérnámið á Starfatorgi með því að smella á viðkomandi hlekk í listanum hér að neðan.
- Ef umsækjandi ætlar að sækja um fleiri en eina sérgrein þarf að sækja um hverja og eina í aðskildri umsókn.
Athugið að ef umsækjandi ætlar að sækja um fleiri en eina sérgrein þarf að sækja um hverja og eina í aðskildri umsókn.
- Almennar lyflækningar - fullt sérnám, fyrra stig
- Almennar lyflækningar - fullt sérnám, seinna stig
- Barnalækningar - hlutasérnám
- Barna- og unglingageðlækningar - fullt sérnám
- Bráðalækningar - fullt sérnám
- Bæklunarskurðlækningar - fullt sérnám, fyrra stig
- Endurhæfingarlækningar - hlutasérnám
- Fæðinga- og kvensjúkdómalækningar - hlutasérnám
- Geðlækningar - fullt sérnám
- Háls-, nef- og eyrnalækningar - hlutasérnám
- Kjarnanám í skurðlækningum - hlutasérnám
- Myndgreining - hlutasérnám
- Svæfinga- og gjörgæslulækningar - hlutasérnám
- Réttarlæknisfræði - hlutasérnám
- Taugalækningar - hlutasérnám
- Öldrunarlækningar - viðbótarsérnám eða undirsérgrein
Auglýsingar um störf lækna með lækningaleyfi (ekki formlegt sérnám) eru í eftirfarandi sérgreinum:
Information for applicants who do not speak Icelandic or don‘t have an Icelandic medical licence
Almennar upplýsingar veitir: Gunnar Thorarensen, yfirlæknir sérnáms –gunnarth@landspitali.is