Farsóttanefnd hefur lagt til við forstjóra Landspítala að breyta grímuskyldu sem sett var á 4. janúar síðastliðinn í valkvæða grímunotkun.
Þá er átt við að ráðlagt er að starfsfólk og heimsóknargestir noti grímur í samskiptum ef þeir hafa einkenni um öndunarfærasýkingu eða eru að jafna sig eftir veikindi.
Ávallt er hvatt til grundvallarsmitgátar, handhreinsun er ódýrasta og virkasta forvörnin gegn sýkingum. Grímunotkun er einnig áhrifarík vörn þegar einkenni eru til staðar. Áfram er minnt á að fólk komi ekki veikt til vinnu og að gestir komi ekki í heimsókn veikir eða ef veikindi eru á heimilinu.
Hér að neðan má sjá hvernig þróun innlagna og greininga öndunarfæraveira hefur verið og byggt á þessum staðreyndum er þessi ákvörðun tekin. Hún tekur gildi nú þegar