Helgihald á Landspítala verður sent út á páskadag 31. mars á sjónvarpsrás 53 innan spítalans.
Einnig verður hægt að nálgast útsendinguna á heimasíðu og Facebooksíðu Landspítala á páskadag frá kl. 8.00 að morgni.
Við helgistundina þjóna: Anna Hulda Júlíusdóttir, sjúkrahúsdjákni, Dagbjört Eiríksdóttir, sjúkrahúsdjákni, sr. Eysteinn Orri Gunnarsson, sr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir, sr. Gunnar Rúnar Matthíasson, sr. Hjördís Perla Rafnsdóttir, sr. Ingólfur Hartvigsson, sr. Sveinbjörg Katrín Pálsdóttir og sr. Þuríður Björg Wiium Árnadóttir.
Einsöngvari er Jóna G. Kolbrúnardóttir og kórsöng annast félagar úr Kammerkór Hafnarfjarðar.
Organisti og kórstjóri er Helgi Bragason.
Stjórn upptöku og samsetningar var í höndum Ásvalds Kristjánssonar hjá samskiptadeild Landspítala.