Ólafur Þór lauk kandídatsprófi í læknisfræði frá læknadeild Háskóla Íslands 1990 og sérnámi í lyflækningum og öldrunarlækningum frá University of Connecticut School of Medicine (UCONN) 1997. Hann starfaði við kandidatsnám á Landakoti 1990-1991, á Ísafirði sem Heilsugæslulæknir 1991-1992 og í BNA UCONN (í starfsnámi) 1992-1997.
Ólafur starfaði að loknu námi sem yfirlæknir á Lyfja-, öldrunar og endurhæfingardeild Heilbrigðisstofnunarinnar í Ísafjarðarbæ 1997-2000 og síðan sem sérfræðingur á Öldrunarlækningadeild Landspítala frá ágúst 2000 og aðstoðarsviðsstjóri öldrunarsviðs Landspítala frá 2005-2009. Hann hefur stundað margvísleg kennslustörf og verið virkur í ýmsu félagsstarfi og stjórnmálum og gengt trúnaðarstörfum því tengdu.
„Fjölgun eldra fólks hefur í för með sér áskoranir fyrir heilbrigðiskerfið. Endurhæfing eftir sjúkdóma og slys mun verða æ mikilvægari liður í að takast á við þær áskoranir. Efling slíkrar þjónustu á Landakoti mun skipta eldra fólk verulegu máli og bæta lífsgæði margra.“