Íslendingar nota meiri lyf en gengur og gerist í nágrannalöndunum og stundum getur ávinningur lyfjameðferðar verið minni en skaðsemin.
Landspítali á aðild að átakinu Lyf án skaða sem hefur það að markmiði að draga úr alvarlegum skaða af völdum lyfja.
Upptökur af málþinginu eru aðgengilegar hér.
Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari Landspítala, var einnig á staðnum og smellti af nokkrum góðum myndum!