Útskrifaðir voru fimm hjúkrunarfræðingar og tvær ljósmæður en um er að ræða tveggja ára starfsnám á vegum menntadeildar og framkvæmdastjóra hjúkrunar á Landspítala. Markmiðið er að hjúkrunarfræðingar og ljósmæður fái tækifæri til að þróa sérfræðiþekkingu á ákveðnu fræðasviði sem nýtist skjólstæðingum Landspítala.
Útskriftarnemarnir kynntu verkefni sín í sérfræðináminu og fengu afhentar viðurkenningar. Þeir eru:
- Anna Harðardóttir: Gjörgæsluhjúkrun, börn og taugamat
- Elsa Ruth Gylfadóttir: Fæðingarhjálp, notkun ómtækja í fæðingum
- Gyða Valdís Guðmundsdóttir: Barnahjúkrun og hjartveik börn
- Kristín Jóhannesdóttir: Gjörgæsluhjúkrun og blóðskilunarmeðferð
- María Kristjánsdóttir: Hjúkrun bráðveikra heila- og taugaskurðsjúklinga
- Steinunn H. Blöndal: Fæðingarhjálp og eðlilegt fæðingaferli
- Regína Böðvarsdóttir: Gjörgæsluhjúkrun og öndunarstuðningur
Við athöfnina fluttu ávörp þau Katrín Blöndal, kennslustjóri sérfræðináms, og Ólafur G. Skúlason, framkvæmdastjóri hjúkrunar. Þá sagði Hallfríður Kristín Jónsdóttir sérfræðiljósmóðir frá reynslu sinni af sérfræðináminu. Fundarstjóri var Hrund Scheving Thorsteinsson, deildarstjóri menntadeildar.