Tímaritið er hluti af European Society of Emergency Nurses (EuSEN), samtökum sem fagdeild bráðahjúkrunar á Íslandi hefur tengsl við. Grein Svönu Kötlu byggir á lokaritgerð hennar í meistaranámi í bráðahjúkrun við Háskóla Íslands.
Meistararitgerðin bar heitið „Höfuðáverkar barna: lýsandi rannsókn á nýgengi, komum, orsökum og ferli sjúklinga innan Landspítala á árunum 2010 til 2021“. Um var að ræða afturskyggða lýsandi rannsókn á börnum sem komu á bráðamóttökur Landspítala með höfuðáverka á tilgreindu rannsóknartímabili. Rannsóknin var unnin undir leiðsögn Þórdísar Katrínar Þorsteinsdóttur og Karls Fannars Gunnarssonar.
Svana lauk hjúkrunarfræðiprófi frá hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands árið 2018 og fyrrgreindu meistaraprófi árið 2023. Hún stundar nú sérfræðinám í hjúkrun við Landspítala þar sem áherslan er á bráðahjúkrun barna og slævingar barna innan spítalans. Verkefni hennar á spítalanum miða að því að efla fagþekkingu hjúkrunarfræðinga og bæta öryggi og þjónustu fyrir börn sem leita á Landspítala.
Birting rannsóknargreinarinnar markar stóran áfanga í starfsferli Svönu Kötlu. Við óskum henni innilega til hamingju með þennan merka árangur.