Vinnan við umbótaverkefnin hefur verið í gangi frá því í byrjun hausts og voru þau unnin samkvæmt aðferðafræði umbótarannsókna, undir handleiðslu Ameliu Samuel á gæðadeild spítalans.
Alls voru sjö verkefni kynnt og eftir hverja kynningu var gefinn kostur á spurningum og sköpuðust talsverðar umræður um verkefnin.
- Anna Tómasdóttir: Skjáborð á göngudeild smitsjúkdóma B1
- Fanney Viktoría Kristjánsdóttir: Bættar mælingar á lífsmörkum og þyngd hjá þjónustuþegum á Laugarási Meðferðargeðdeild
- Guðrún Árnadóttir: Fræðsla og upplýsingar um verkjameðferð og notkun verkjamatskvarða í tengslum við aðgerð vegna brjóstakrabbameins
- Sigurveig Ósk Pálsdóttir: Notkun markvissra aðferða til að hvetja til hreyfingar í fæðingu og styðja þannig við eðlilegt fæðingarferli
- Sjöfn Kjartansdóttir og Sölvi Sveinsson: Aukin skráning á taugamati gjörgæslusjúklinga
- Svana Katla Þorsteinsdóttir: Bætt skráning og eftirlit á bráðamóttöku Barnaspítala hringsins.
- Þuríður Geirsdóttir og Sigríður Rúna Þóroddsdóttir: Stytt tímalengd föstu á tæra drykki fyrir skurðaðgerð