Ólöf útskrifaðist frá læknadeild Háskóla Íslands árið 1985, lauk sérnámi í klínískri lífefnafræði frá Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi 1992 og doktorsprófi frá Karolinska Institutet 1994.
Ólöf hefur starfað á klínískri lífefnafræðideild Landspítala frá 1996 (fyrst Borgarspítala og Sjúkrahúsinu í Reykjavík) með hléum og síðustu árin verið í hálfu starfi sem sérfræðingur á Landspítala.
Hún hefur verið yfirlæknir rannsóknadeildar Sjúkrahússins á Akureyri (SAk, áður FSA) frá 2008, fyrst í fullu starfi en frá 2011 í hálfu starfi.
Hún starfaði á árunum 2006-2007 í hlutastarfi sem trúnaðarlæknir starfsmanna Landspítala. Hún hefur komið að kennslu lífeindafræðinema og læknanema frá heimkomu.
Síðustu árin hefur hún ásamt samstarfsfólki komið á skipulagningu nærrannsókna á sjúkrahúsunum tveimur (Point of Care testing) og unnið að klínískum leiðbeiningum í þeim efnum.
„Það eru mjög áhugaverðir tímar framundan með byggingu nýs rannsóknahúss og meiri samvinnu innan rannsóknasviðs, bæði á Landspítala og á landsvísu. Það verður einnig spennandi að komast að því hvernig hægt verði að nýta gervigreindina í þessu fagi. Það þarf að efla rannsóknasvið og rannsóknir á Landspítala og fá fleira ungt fólk í fagið.“