Yfirlæknir slysa- og bráðamóttöku
|
Jón Baldursson yfirlæknir slysa- og bráðamóttöku LSH |
|
Jón Baldursson læknir hefur verið ráðinn til að gegna starfi yfirlæknis slysa- og bráðamóttöku Landspítala - háskólasjúkrahúss frá og með 1. febrúar 2002. Ráðningin er á grundvelli umsóknar um stöðuna, umfjöllunar í stöðunefndum landlæknisembættisins og læknaráðs LSH, viðtala og að fenginni umsögn stjórnarnefndar LSH. Yfirlæknir slysa- og bráðamóttöku starfar samkvæmt starfslýsingu.