Magnús Gottfreðsson, læknir hefur verið ráðinn til að gegna starfi yfirlæknis smitsjúkdómalækninga við lyflækningasvið I á LSH frá og með 15. júní 2007 að telja til tveggja ára. Ráðningin er á grundvelli umsóknar um stöðuna, umfjöllunar í stöðunefndum landlæknisembættisins og læknaráðs LSH, viðtals og að fenginni umsögn stjórnarnefndar LSH. Yfirlæknir smitsjúkdómalækninga starfar samkvæmt starfslýsingu. |
Ráðinn yfirlæknir smitsjúkdómalækninga
Magnús Gottfreðsson, læknir hefur verið ráðinn til að gegna starfi yfirlæknis smitsjúkdómalækninga við lyflækningasvið I á LSH