Ragna Gústafsdóttir hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri slysa- og bráðadeildar G-2 í Fossvogi frá og með 1. desember 2005 en hún var sett í stöðuna 1. janúar 2004. Ráðning hennar nú er á grundvelli umsóknar um stöðuna, umfjöllunar í stöðunefnd hjúkrunarráðs LSH og viðtals.
Ragna hóf störf á slysadeild í Fossvogi árið 1992 og hefur verið aðstoðardeildarstjóri frá 1994 og staðgengill hjúkrunardeildarstjóra. Áður en hún hóf störf á slysadeild starfaði hún sem hjúkrunarfræðingur á Landakoti á árunum 1983 til 1992.