Landspítali - háskólasjúkrahús
Skrifstofa forstjóra
Fréttatilkynning 15. janúar 2003
Samningar um ferliverka-
greiðslur framlengdir
Formaður stjórnarnefndar ásamt forstjóra og framkvæmdastjóra lækninga hafa ákveðið að framlengja gildi samninga sérfræðilækna sem haft hafa samning um ferliverkagreiðslur á spítalanum til loka febrúarmánaðar 2003. Er þetta gert með stoð í bókun stjórnarnefndar frá 8. janúar 2003 og til þess að tími vinnist til að skipa málum svo ekki komi til truflunar á þjónustu við sjúklinga.