Fréttatilkynning frá lækningaforstjóra 18. mars 2004:
Í fréttaflutningi af andláti barns á Landspítala í nóvember 2002 hefur verið fullyrt að barn sem foreldrar þess eignuðust í vetur hafi fæðst í Skotlandi. Það er rangt. Hið rétta er að barnið fæddist á fæðingardeild Landspítala - háskólasjúkrahúss. Vegna trúnaðar við skjólstæðinga og lögreglurannsóknar er að öðru leyti ekki hægt að greina frá málsatvikum.