Þórarinn E. Sveinsson yfirlæknir geislameðferðardeildar LSH |
Þórarinn E. Sveinsson læknir hefur verið ráðinn til að gegna starfi yfirlæknis geislameðferðardeildar Landspítala - háskólasjúkrahúss frá og með 1. október sl. að telja. Ráðningin er á grundvelli umsóknar um stöðuna, umfjöllunar í stöðunefndum landlæknisembættisins og læknaráðs LSH, viðtala og að fenginni umsögn stjórnarnefndar LSH. Yfirlæknir geislameðferðardeildar lyflækningasviðs II starfar samkvæmt starfslýsingu.