Dr. Helgi Sigurðsson hefur verið ráðinn prófessor í krabbameinslækningum
við læknadeild Háskóla Íslands og yfirlæknir við Landspítala - háskólasjúkrahús.
Helgi er fæddur 1952 og lauk læknanámi árið 1979. Hann varð sérfræðingur í krabbameinslækningum árið 1986
og lauk doktorsprófi í læknisfræði á sviði krabbameinslækninga árið 1992 frá læknadeild Háskólans í Lundi, Svíþjóð.
Hann hefur starfað sem sérfræðingur í krabbameinslækningum við Landspítalann frá árinu 1989, sem yfirlæknir
frá því árið 1997 fyrst við krabbameinslækningadeild Landspítala og síðar Krabbameinsmiðstöð Landspítala - háskólasjúkrahúss (LSH)
og sem dósent í krabbameinslækningum við læknadeild Háskóla Íslands (HÍ) frá árinu 1996.
Rannsóknir Helga hafa verið á mörgum sviðum krabbameinslækninga, faraldsfræði krabbameina,
mat á horfum sjúklinga með krabbamein og árangur lyfjameðferðar.
Helgi er höfundur eða meðhöfundur fjölda vísindagreina og eru rúmlega 1.900 tilvitnanir í þær greinar (Web of Science, 2006).
Helgi er þekktur bridgespilari og var á árum áður í landsliði Íslands.
Hann hefur orðið Íslandsmeistari í bridge í tvímenningi og sveitakeppni.
Helgi er sonarsonur Helga Ingvarssonar heitins, fyrrum yfirlæknis berklahælisins á Vífilsstöðum.
Níu af afkomendum þess síðarnefnda eru læknar eða eru að ljúka læknanámi.
Helgi er giftur Ingunni Vilhjálmsdóttur, svæfingalækni á LSH og þau eiga tvö börn, Hörð Stefán sem er að útskrifast sem stúdent frá MR í vor og
Hildi Björgu sem er læknir í sérnámi í krabbameinslækningum við Karolinska sjúkrahúsið í Stokkhólmi.
Krabbameinssjúklingum fjölgar árlega um 4% hér á landi. Meðhöndlun sjúklinga með krabbamein er ört vaxandi þáttur
í starfsemi LSH og sem dæmi má nefna að á síðasta ári hófu störf á LSH þrír nýir sérfræðingar í krabbameinslækningum.
Prófessorsstaðan í krabbameinslækningum er merki um aukna áherslu á vægi krabbameinslækninga innan LSH
og er staðan sú fyrsta á því sviði. Frumkvæðið að styrkingu krabbameinslækninga sem fræðigreinar innan læknadeildar
kemur frá framkvæmdastjórn LSH og byggir á samkomulagi milli HÍ og LSH.