Sérhæfð heimaþjónusta fyrir veika aldraða, í samstarfi Landspítala - háskólasjúkrahúss (LSH) og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH), hefur störf í byrjun október og er stefnt að því að fyrstu sjúklingar fái þjónustu þá. Með þjónustunni er leitast við að mæta óskum aldraðra um að geta dvalið lengur í heimahúsi þrátt fyrir veikindi og um leið að færri sjúklingar í hópi aldraðra þurfi að bíða eftir annarri þjónustu. Sérhæft teymi hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, félagsliða, öldrunarlækna, sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa og sérfræðings í öldrunarhjúkrun, mun sinna þessari þjónustu. Hlutverk teymisins er að stýra og skipuleggja ofangreinda þjónustu, ásamt því að veita þverfaglega/fjölþátta meðferð og umönnun í heimahúsi. Tilgangur teymisins er að auka þjónustu við fjölveika aldraða og gera þeim kleift að dvelja lengur heima þrátt fyrir veikindi. Meðferð og umönnun sjúklings fer fram heima hjá honum í samvinnu við fjölskyldu og önnur úrræði sem eru í boði fyrir aldraða. Gert er ráð fyrir því að sérhæfð heimaþjónusta fyrir veika aldraðra nái að jafnaði til 20 sjúklinga á hverjum tíma. Þetta er nýjung í meðferð og eftirfylgd fjölveikra aldraðra. Þjónustunni er hleypt af stokkunum að tilstuðlan heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins. Ráðuneytið bæði hvatti til þessarar nýbreytni og veitti henni fjárhagslegan stuðning. |
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra setti starfsemina formlega af stað við athöfn í anddyri Landspítala Fossvogi miðvikudaginn 27. september 2006. Á borðshorninu. Samkomulag undirritað milli Landspítala - háskólasjúkrahúss og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um sérhæfða heimaþjónustu fyrir veika aldraða. Magnús Pétursson forstjóri LSH, Guðmundur Einarsson forstjóri HH, Þórunn Ólafsdóttir hjúkrunarforstjóri HH og Anna Stefánsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á LSH. |
Sérhæfð heimaþjónusta fyrir veika aldraða
Starfsemi sérhæfðrar þjónustu fyrir veika aldraðra hefst í byrjun október 2006. Þetta er samstarfsverkefni Landspítala - háskólasjúkrahúss (LSH) og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og með þjónustunni er leitast við að mæta óskum aldraðra um að geta dvalið lengur í heimahúsi þrátt fyrir veikindi.