Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir tekur við starfi aðstoðarmanns Önnu Stefánsdóttur framkvæmdastjóra hjúkrunar á Landspítala - háskólasjúkrahúsi 1. júní 2006. Guðrún Björg hefur verið sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs á skrifstofu fjárreiðna og upplýsinga en tekur við af Guðbjörgu Pálsdóttir sem fer í barneignarleyfi frá þeim tíma. | ||
Við starfi sviðsstjóra hag- og upplýsingasviðs tekur María Heimisdóttir læknir. María mun jafnframt sviðsstjórastarfinu stýra áfram nefnd um rafræna sjúkraskrá í umboði Jóhannesar M. Gunnarssonar framkvæmdastjóra lækninga. |
Nýr aðstoðarmaður og nýr sviðsstjóri
Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir verður aðstoðarmaður framkvæmdastjóra hjúkrunar frá 1. júní 2006. María Heimisdóttir læknir tekur við af henni sem sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs.