Deildarstjóri röntgendeildar Fossvogi
Hansína Sigurgeirsdóttir geislafræðingur hefur tekið við starfi deildarstjóra röntgendeildar Fossvogi. Hún kemur frá Central sjúkrahúsinu í Esbjerg/Varde í Danmörku þar sem hún hefur unnið í 6 ár, fyrst sem röntgentæknir og síðan stjórnandi við CT skönnunardeildina. Þar áður vann Hansína meðal annars við röntgen í Dómus og á Landakoti. Hansína er í námi í stjórnun og heilsuhagfræði í háskólanum í Óðinsvéum og lýkur diploma prófi þaðan í desember. Hún varð röntgentæknir frá Röntgentækniskóla Íslands árið 1978.