Björn Zoëga yfirlæknir skurðstofu LSH í Fossvogi hefur verið valinn til að gegna starfi sviðsstjóra lækninga á skurðlækningasviði frá og með 1. maí 2005. Val hans hefur verið samþykkt af stefnunefnd H.Í. og LSH og kynnt stjórnarnefnd LSH. Björn tekur við af Aroni Björnssyni sem hefur verið sviðsstjóri frá 7. mars, í kjölfar þess að Jónas Magnússon prófessor óskaði eftir því að hætta að gegna þeirri stöðu. |
Björn Zoëga sviðsstjóri lækninga á skurðlækningasviði
Björn Zoëga yfirlæknir verður sviðsstjóri lækninga á skurðlækningasviði LSH frá 1. maí 2005.