Nýtt húsnæði og nýir bílar
Sjúkrahústengdri heimaþjónustu voru 15. júní afhentir tveir bílar til afnota. Um er að ræða Volkswagenbíla sem LSH gerir rekstrarleigusamning um til þriggja ára.
Þann 20. júní flutti sjúkrahústengd heimaþjónusta í nýtt húsnæði, C-8 í Fossvogi. Þar starfa nú níu hjúkrunarfræðingar í sem svarar 4,2 stöðugildum.
Sjúkrahústengd heimaþjónusta veitir hjúkrunarþjónustu frá 08.00 - 24:00 alla daga fyrir sjúklinga Landspítala - háskólasjúkrahúss á höfuðborgarsvæðinu.