Margrét Oddsdóttir yfirlæknir almennrar skurðdeildar |
Margrét Oddsdóttir læknir hefur verið ráðin til að gegna starfi yfirlæknis sameinaðrar almennrar skurðlækningadeildar á Landspítala - háskólasjúkrahúsi frá og með 15. febrúar 2002. Ráðningin er á grundvelli umsóknar um stöðuna, umfjöllunar í stöðunefndum landlæknisembættisins og læknaráðs LSH, viðtala og að fenginni umsögn stjórnarnefndar LSH. Yfirlæknir almennrar skurðdeildar starfar samkvæmt starfslýsingu.