Yfirlæknir á skurðstofum við Hringbraut
Margrét Oddsdóttir hefur verið sett yfirlæknir á skurðstofum Landspítala Hringbraut, samkvæmt bréfi lækningaforstjóra þar um. Setningin gildir frá 1. mars 2001 til 31. desember 2001 eða þar til greiðist úr stöðumálum þeim sem í gangi eru á deildinni, eins og segir í bréfinu.