Hulda Gunnlaugsdóttir hefur sagt lausu starfi sínu sem forstjóri Landspítala. Hún var ráðin til þess frá 1. september 2008 en fékk af persónulegum ástæðum leyfi frá störfum frá 1. október 2009 til 1. október 2010. Björn Zoëga hefur gegnt starfi forstjóra í fjarveru Huldu.
Forstjóri Landspítala er skipaður af heilbrigðisráðherra, samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, og verður starfið auglýst fljótlega.