Beiðni um endurskoðun komugjalds
Vakni spurningar eða athugasemdir vegna reiknings er rétt að hafa samband við innheimtu Landspítala í síma 543 1200 eða senda fyrirspurn eða beiðni á netfangið innheimta@landspitali.is.
Í þeim tilvikum þar sem hugsanlega geta verið til staðar sérstakar og ríkar ástæður sem réttlætt gætu lækkun eða niðurfellingu sjúklingagjalds ber að senda skriflegt erindi, vel rökstutt, til nefndar um niðurfellingu sjúklingagjalda. Nefndin tekur síðan afstöðu til málsins og upplýsir viðkomandi um niðurstöðu beiðnarinnar. Nefndin fundar mánaðarlega og því getur tekið allt að mánuð að fá niðurstöðuna.
Ef athugasemdir snúa að veittri þjónustu frekar en að reikningurinn sé rangur þá eru þrjár leiðir í boði:
- Ræða við yfirmann deildarinnar sem veitti þjónustuna
- Hafa samband við talsmann sjúklinga
- Skila inn athugasemd eða kvörtun til Embættis landlæknis