Leit
Loka

Talskona sjúklinga

Hægt er að hafa samband við talskonu sjúklinga með tölvupósti: talskona@landspitali.is eða með því að hringja í 543100 og óska eftir símtali frá talskonu. Símtölum og tölvupóstum er svarað innan 3 virkra daga.

Talskona sjúklinga er fulltrúi sjúklinga og aðstandenda innan Landspítala Hlutverk talskonu er meðal annars að miðla upplýsingum og veita ráðgjöf til handa sjúklingum Landspítala og aðstandendum þeirra um málefni sem varða réttindi sjúklinga, upplifun þeirra, aðfinnslur, hrós og öll önnur málefni sem sjúklingar og aðstandendur telja mikilvægt að fá upplýsingar eða koma á framfæri við stofnunina.