Læknisfræðilegur eðlisfræðingur á myndgreiningardeild
Spennandi tækifæri á Myndgreiningardeild Landspítala!
Við leitum af metnaðarfullum læknisfræðilegum eðlisfræðingi sem hefur áhuga á að taka þátt í þróun fagsins og uppbyggingu teymis eðlisfræðinga á Myndgreiningardeild Landspítala. Deildin sinnir umfangsmikilli starfsemi í myndgreiningu; röntgenrannsóknum, tölvusneiðmyndarannsóknum, segulómrannsóknum, ómskoðunum og jáeinda- og ísótóparannsóknum. Eðlisfræðingur þjónustar einnig inngrips- og æðaþræðingardeild sem er sú eina sinnar tegundar á landinu, auk þess að þjónusta aðrar deildir spítalans sem hafa myndgreiningartæki. Framkvæmdar eru um 140.000 rannsóknir árlega og við deildirnar starfa um 180 starfsmenn.
Starfið er dagvinna, með möguleika á útköllum vegna eftirlits og bilana eða innmælinga á nýjum búnaði. Upphaf starfs er 1. október 2024 eða eftir samkomulagi. Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi.
- Almenn störf læknisfræðislegs eðlisfræðings á Myndgreiningardeild
- Þáttaka í sérfræðiráðgjöf á Landspítala og til annarra stofnana og fagaðila
- Kennsla og leiðsögn fyrir heilbrigðisstarfsmenn
- Þátttaka í kennslu og vísindastarfi
- Þátttaka í gæða- og umbótastarfi
- Menntun í læknisfræðilegri eðlisfræði, meistaragráða
- Starfsleyfi læknisfræðilegs eðlisfræðings æskilegt
- Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
- Ef íslenska er ekki móðurmál þá er gerð krafa um góða færni og þekkingu í ensku.
- Reynsla af störfum læknisfræðilegs eðlisfræðings á sjúkrahúsi er kostur
- Reynsla af kennslu og vísindastörfum er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Nauðsynleg fylgiskjöl: Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum - Ferilskrá þar sem tilgreind er fyrri reynsla - Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, eðlisfræðingur, myndgreining