Sérhæfður starfsmaður við sundlaug og í sjúkraþjálfun Grensási
Viltu vinna með skemmtilegu fólki og vera hluti af góðri liðsheild? Við leitum eftir liðsmanni til starfa í sjúkraþjálfun og við sundlaug. Starfið er tvíþætt og skiptist milli þess að starfa sem sundlaugarvörður og sérhæfður starfsmaður sjúkraþjálfunar. Starfshlutfall er 100% og unnið er í dagvinnu.
Í sjúkraþjálfun Grensási starfa um 20 starfsmenn í þverfaglegu teymi og sinna fjölbreyttri og sérhæfðri endurhæfingu sjúklinga m.a. með skaða í miðtaugakerfi, fjöláverka, aflimanir auk almennrar endurhæfingar.
Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum og veitum góða aðlögun. Fríðindi í starfi eru m.a. samgöngusamningur, styttri vinnuvika o.fl.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf 1. september 2024 eða eftir samkomulagi. Starfshlutfall er 100%.
- Aðstoð og eftirlit með sundlaugargestum í búningsklefum og sundlaugarsvæði
- Sinnir eftirliti í tækjasal og aðstoðar sjúkraþjálfara við meðferð
- Móttaka og skráning í þjálfun og í sund
- Umsjón með rekstarvörum og frágangur á þjálfunarsvæði og á laugarsvæði
- Önnur tilfallandi verkefni
- Reynsla af umönnunarstörfum er æskileg
- Hæfni í mannlegum samskiptum og þverfaglegu samstarfi
- Sjálfstæði og skipulagshæfni í vinnubrögðum
- Metnaður og frumkvæði í starfi
- Hæfnispróf fyrir laugarverði er tekið eftir að viðkomandi hefur hafið störf
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Heilbrigðisþjónusta, endurhæfing, sérhæfður starfsmaður