Skrifstofustarf í þjónustuveri aðfangaþjónustu
Rekstrar- og mannauðssvið Landspítala auglýsir laust til umsóknar skrifstofustarf í þjónustuveri aðfangaþjónustu. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Leitað er að jákvæðum og ábyrgum einstaklingi sem býr yfir lipurð í mannlegum samskiptum, stundvísi og heiðarleika.
Þjónustuver aðfangaþjónustu er staðsett á Tunguhálsi í vöruhúsi Landspítala. Þjónustuver ber ábyrgð á að veita framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini spítalans, svara fyrirspurnum viðskiptavina í síma og tölvupósti, taka eða leiðrétta pantanir, tryggja afgreiðslu vara til viðskiptavina frá vöruhúsi og fleira sem kemur að þjónustu við viðskiptavini innan og utan spítalans.
Starfið í þjónustuveri heyrir undir teymisstjóra vöruhúss sem er ábyrgur fyrir því að starfsemin gangi skilvirkt fyrir sig eftir settum markmiðum. Teymið telur í dag um 15 aðila og heldur utan um alla afgreiðslu á rekstrarvörum í vöruhúsi. Vöruhús Landspítala hýsir heilbrigðis- og rekstrarvörur fyrir spítalann og aðrar heilbrigðisstofnanir. Markmið vöruhúss er að veita framúrskarandi þjónustu í afgreiðslu rekstrarvara og birgðastýringu fyrir deildir spítalans og aðrar heilbrigðisstofnanir. Starf í þjónustuveri er fjölbreytt og gefandi og verður viðkomandi í miklu samstarfi við annað starfsfólk innan teymisins sem og starfsfólk deilda og annarra viðskiptavina.
Skrifstofa vöruhúss er hluti af aðfangaþjónustu Landspítala sem tilheyrir sviði rekstrar og mannauðs. Teymið er staðsett á Tunguhálsi 2 og er vinnutími dagvinna frá kl. 08:00 að morgni.
- Þjónusta við viðskiptavini í gegnum síma og tölvupóst
- Taka við og fylgja eftir pöntunum til afgreiðslu
- Leiðréttingar frávika og utan um hald á birgðastöðu vöruhúss
- Ráðgjöf til viðskiptavina um magn og tegundir rekstrarvara
- Ber ábyrgð á framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Jákvætt og lausnamiðað viðhorf
- Þjónustulund, metnaður og frumkvæði
- Góðir samskiptahæfileikar
- Íslenskumælandi
- Reynsla af sambærilegu þjónustustarfi
- Menntun við hæfi t.d. á sviði viðskipta kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, almennur starfsmaður, teymisvinna, skrifstofustörf