Hjúkrunarfræðingar á göngudeild geð- og fíknisjúkdóma
Við óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðinga á göngudeild geð- og fíknisjúkdóma 31C. Við leitumst eftir að ráða inn hjúkrunarfræðinga í 80-100% dagvinnu.
Markhópur deildarinnar eru einstaklingar með tvíþættan vanda; alvarlega geðsjúkdóma og alvarlegan fíknivanda. Á göngudeildinni eru starfrækt tvö teymi:
- Göngudeildarteymi sem sinnir einstaklingum með tvíþættan vanda, einstaklingum sem koma á vegum barnaverndar og barnshafandi konum
- Laufeyjarteymi sem sinnir einstaklingum með tvíþættan vanda í þeirra nærumhverfi
Göngudeild geð- og fíknisjúkdóma heyrir undir meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma en undir eininguna heyra einnig dagdeild, legudeild, vettvangsgeðteymi og afeitrunardeild ólögráða ungmenna. Um er að ræða spennandi og gefandi starf þar sem unnið er í þverfaglegum teymum. Áherslur í starfinu eru meðal annars skaðaminnkun, batamiðuð hugmyndafræði, áhugahvetjandi samtal og geðlæknisfræði.
- Góður starfsandi er á göngudeildinni og sinna hjúkrunarfræðingar þar lykilhlutverki í starfseminni
- Einstaklingshæfð aðlögun
- Fjölskylduvænn vinnutími
- Mikil tækifæri til framþróunar og að verða sjálfstæður meðferðaraðili
- Starfsemin er í stöðugri framþróun og unnið er að fjölbreyttum umbótaverkefnum
Ráðið verður í starfið frá 16. nóvember eða eftir nánara samkomulagi. Á meðferðareiningunni eru mikil tækifæri til vaxtar og sérhæfingar. Starfsaðlögun er markviss og einstaklingsmiðuð.
- Ákveða, skipuleggja og veita viðeigandi hjúkrunarmeðferð
- Virk þátttaka í þverfaglegu samstarfi
- Samskipti, hvatning, leiðbeiningar og víðtækur stuðningur við einstaklinga og aðstandendur þeirra
- Þátttaka í umbótastarfi og þróun þjónustunnar
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Reynsla af geðhjúkrun er kostur en ekki skilyrði
- Reynsla af hjúkrun einstaklinga með vímuefnavanda er kostur
- Faglegur metnaður og einlægur áhugi á geðhjúkrun og skaðaminnkun skilyrði
- Góð samskiptahæfni
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi
- Jákvætt hugarfar, metnaður og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Færni til að skipuleggja og forgangsraða verkefnum
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð færni í íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5