Yfirlæknir gjörgæslulækninga í svæfinga- og gjörgæslulækningum
Starf yfirlæknis gjörgæslulækninga í svæfinga- og gjörgæslulækningum Landspítala er laust til umsóknar. Við leitum eftir öflugum leiðtoga með faglega hæfni til að byggja upp og leiða þjónustu við sjúklinga, mannauð og rekstur. Yfirlæknir fer með forystu fyrir þjónustu við sjúklinga á sínu sérsviði, þróun faglegrar þjónustu, umbreytingarstarfi og gæða- og öryggismálum. Hann stuðlar að teymisvinnu innan deildar í samvinnu við aðra stjórnendur og samstarfsaðila.
Yfirlæknir hefur þríþætta ábyrgð stjórnanda, þ.e. faglega ábyrgð, ábyrgð á mannauði og rekstrarábyrgð. Auk þess gegnir yfirlæknir mikilvægu hlutverki í kennslumálum og uppbyggingu vísindastarfs
Yfirlæknir starfar í nánu samstarfi við forstöðulækni, framkvæmdastjóra sviðs og framkvæmdastjóra lækninga og er þátttakandi í stjórnendateymi skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu. Næsti yfirmaður er forstöðulæknir svæfinga- og gjörgæslulækninga.
Starfið veitist frá 1. janúar 2025 eða eftir samkomulagi og er starfshlutfall 100%. Gerð er krafa um helgun í starfi yfirlæknis.
Í svæfinga- og gjörgæslulækningum Landspítala starfa rúmlega 40 sérfræðilæknar og um 20 sérnámslæknar í þverfaglegu teymi og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir spítalans.
- Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun svæfinga- og gjörgæslulækninga á Landspítala, þ.m.t. kennslumál og vísindastarf
- Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstri og áætlanagerð einingar
- Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á einingunni
- Framfylgir stefnumótun og áherslum framkvæmdastjórnar og ber ábyrgð á gerð og eftirfylgd starfsáætlunar einingar í samræmi við starfsáætlun Landspítala
- Tekur þátt í gerð þjónustuáætlana og framfylgd þeirra
- Styður við skilvirkt flæði sjúklinga innan Landspítala
- Hefur forystu um/tekur þátt áframhaldandi uppbyggingu, skipulagi og þróun svæfinga- og gjörgæslulækninga á Landspítala inn í nýjan Landspítala
- Íslenskt sérfræðileyfi í svæfinga- og gjörgæslulækningum
- Reynsla í svæfinga- og gjörgæslulækningum
- Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar
- Færni í stjórnunarhlutverki, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð
- Þekking og áhugi á uppbyggingu og stýringu mannauðs og teymisvinnu
- Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
- Reynsla af kennslu og vísindastörfum og sýn til framtíðar á þeim sviðum
- Mjög góð íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum
- Afrit af lækninga- og sérfræðileyfum sem og vottuð afrit af erlendum leyfum (ef við á)
- Staðfesting á læknis-, stjórnunar- og kennslustörfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af læknis-, kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis skal fylgja með umsókn. Umsækjandi sækir skjalið hér og vistar, fyllir það út og sendir með umsókn
- Kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni
Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar lækna skv. 36. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, sem hefur aðsetur hjá Embætti landlæknis. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim auk mats stöðunefndar á innsendum umsóknargögnum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Yfirlæknir, sérfræðilæknir
Tungumálahæfni: íslenska 5/5,