Sérhæfður starfsmaður við sundlaug og í sjúkraþjálfun Grensási
Viltu vinna með skemmtilegu fólki og vera hluti af góðri liðsheild!
Við leitum eftir þjónustuliprum einstaklingi með góða samskiptahæfni til starfa í sjúkraþjálfun og við sundlaug. Starfið er tvíþætt og skiptist milli þess að starfa sem sérhæfður starfsmaður sjúkraþjálfunar og sundlaugarvörður. Starfshlutfall er 100% og unnið er í dagvinnu.
Í sjúkraþjálfun Grensási starfa um 20 einstaklingar sem sinna fjölbreyttri og sérhæfðri endurhæfingu sjúklinga m.a. með skaða í miðtaugakerfi, fjöláverka, aflimanir auk almennrar endurhæfingar.
Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða aðlögun. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 2. janúar 2025.
- Aðstoð og eftirlit með sundlaugargestum í búningsklefum og sundlaugarsvæði
- Sinnir eftirliti í tækjasal og aðstoðar sjúkraþjálfara við meðferð
- Móttaka og skráning í þjálfun og í sund
- Eftirlit með tækjabúnaði og mælingar á klór í sundlaug
- Umsjón með rekstrarvörum og frágangur á þjálfunarsvæði og á laugarsvæði
- Önnur tilfallandi verkefni
- Reynsla af umönnunarstörfum er æskileg
- Hæfni í mannlegum samskiptum og þverfaglegu samstarfi
- Sjálfstæði og skipulagshæfni í vinnubrögðum
- Metnaður og frumkvæði í starfi
- Kunna að synda. Hæfnispróf fyrir laugarverði er tekið eftir að viðkomandi hefur hafið störf
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérhæfður starfsmaður, baðvarsla, móttaka, sund
Tungumálahæfni: íslenska 3/5