Fagleg handleiðsla og starfsmannastuðningur
Landspítali óskar eftir að ráða reynslumikinn og sérhæfðan einstakling til að sinna faglegri hóphandleiðslu. Í starfinu felst handleiðsla fyrir starfsfólk spítalans, auk aðkoma að fræðslu. Viðkomandi mun tilheyra Stuðningsteymi starfsfólks Landspítala.
Við viljum ráða einstakling sem hefur menntun og þjálfun í faglegri handleiðslu, færni í hóphandleiðslu, er lausnamiðaður, hvetjandi og brennur fyrir eflingu einstaklinga og jákvæðri úrlausn mála. Reynsla af úrvinnslu erfiðra samskiptamála og vinna með vanlíðan af ýmsu tagi er mikill kostur sem og reynsla af stjórnun, markþjálfun, skipulagningu vinnustofa og teymisvinnu.
Stuðningsteymi starfsfólks heyrir undir rekstrar- og mannauðssvið. Starfshlutfall er 100% og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
- Hóphandleiðsla
- Handleiðsla, stuðningur og ráðgjöf við starfsfólk
- Þátttaka í Stuðningsteymi starfsfólks Landspítala, í samræmi við færni og bakgrunn
- Önnur tilfallandi verkefni
- Viðurkennt handleiðslunám á háskólastigi
- Háskólamenntun sem veitir starfsréttindi á sviði félags-, heilbrigðis- eða menntavísinda
- Reynsla af handleiðslu og úrvinnslu samskiptamála á vinnustöðum
- Örugg framkoma, gott orðspor og færni í mannlegum samskiptum
- Metnaður, frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Tungumál: íslenska 5/5, enska 3/5
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sálfræðingur, félagsráðgjafi, prestur, hjúkrunarfræðingur, kennari