Aðstoðardeildarstjóri á rannsóknarkjarna
Laus til umsóknar staða aðstoðardeildarstjóra á rannsóknarkjarna Landspítala. Við leitum eftir metnaðarfullum lífeindafræðingi sem hefur áhuga á teymisvinnu, verkefnastjórnun, umbóta- og gæðastarfi og er tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni á fjölbreyttri deild. Aðstoðardeildarstjóri heyrir undir deildarstjóra rannsóknarkjarna. Unnið er í dagvinnu og er starfið laust frá 1. janúar 2025 eða eftir samkomulagi.
Á rannsóknarkjarna starfa á annað hundrað einstaklingar og þar fara fram greiningar, rannsóknir, ráðgjöf og kennsla heilbrigðisstétta í blóðmeinafræði og klínískri lífefnafræði, auk þess rekur rannsóknarkjarni víðtæka blóðtökuþjónustu innan og utan Landspítala. Þá leggjum við ríka áherslu á jákvæðni, fagmennsku og virðingu gagnvart vinnustaðnum og samstarfsfólki.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Vinnur í samráði við deildarstjóra að skipulagningu á starfsemi deildar
- Ber ábyrgð á tilteknum verkefnum sem deildarstjóri felur honum samkvæmt sérstakri verkefnalýsingu
- Er leiðandi í klínísku starfi, öryggis- og gæðastarfi og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu og framþróun í starfsemi og starfsumhverfi rannsóknarkjarna
- Ber ábyrgð á mönnun og rekstri í fjarveru deildarstjóra
- Vinnur náið með deildarstjóra og teymi aðstoðardeildarstjóra að mótun liðsheildar
- Vinnur eftir þörfum almenn störf á rannsóknarkjarna
- Íslenskt starfsleyfi lífeindafræðings
- Starfsreynsla sem lífeindafræðingur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
- Framhalds- eða viðbótarmenntun æskileg
- Þekking á verkefnastjórnun og umbóta- og gæðastarfi æskileg
- Reynsla af stjórnun kostur
- Frumkvæði, yfirsýn, skipulagsfærni og faglegur metnaður
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Lífeindafræðingur, aðstoðardeildarstjóri, stjórnandi, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 4/5,