Læknir með lækningaleyfi - Hefur þú augastað á augnlækningum?
Við sækjumst eftir almennum lækni sem hefur áhuga á sérfræðinámi í augnlækningum. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust frá 1. feb 2025 eða skv samkomulagi, til 6 mánaða, með möguleika á framlengingu.
Við augnlækningar starfar öflugur hópur sérfræðilækna og almennra lækna í þverfaglegu teymi og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum og veitum góða aðlögun.
- Þjálfun í augnlækningum með þátttöku í klínísku starfi á göngu- og legudeild augndeildar auk bakvakta
- Vinna við ráðgjöf undir umsjón sérfræðilækna
- Kennsla lækna í sérnámsgrunni, læknanema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsmanna, eftir því sem við á
- Þátttaka í vísindastarfi, þróunar- og gæðaverkefnum
- Hafa lokið sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi, sem samþykkt hefur verið af kennsluráði sérnámsgrunns, við upphaf starfs
- Íslenskt lækningaleyfi
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Öguð vinnubrögð
- Að lágmarki B2 tungumálafærni í íslensku, nema um annað hafi verið samið sérstaklega
Frekari upplýsingar um starfið
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf
- Mögulega umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Starfsferilsskrá
- Vottað afrit af prófskírteini og starfsleyfi
- Staðfesting um lok sérnámsgrunns eða áætluð lok ef því er ekki nú þegar lokið. Læknar sem lokið hafa námi erlendis og ætla að fá sérnámsgrunn metinn þurfa að senda erindi á kennsluráð sérnámsgrunns á Íslandi ( sendist á formann kennsluráðsins, Ingu Sif Ólafsdóttur, ingasif@landspitali.is) og fá staðfestingu þess efnis að þeirra nám sé sambærilegt íslenska sérnámsgrunnsárinu.
Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og viðtölum eftir því sem við á. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, læknir með lækningaleyfi