Ljósmóðir óskast til starfa á fæðingarvakt
Laust er til umsóknar starf ljósmóður á fæðingarvakt Landspítala. Á deildinni er veitt þjónusta við konur í eðlilegri fæðingu auk þjónustu við konur með áhættuþætti sem þurfa sérhæft eftirlit í fæðingu.
Á deildinni starfa um 100 manns og er fagmennska og teymisvinna höfð að leiðarljósi. Unnið er í vaktavinnu og er starfshlutfallið 60-100%. Ráðið verður í störfin eftir samkomulagi. Góð aðlögun með reyndum ljósmæðrum í boði.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur enn orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Umönnun kvenna í fæðingu og umönnun nýbura
- Símaráðgjöf og móttaka kvenna í fæðingu og kvenna með bráð vandamál á síðari hluta meðgöngu
- Þátttaka í faglegri þróun umönnunar sem veitt er á deildinni
- Klínísk kennsla ljósmóðurnema og læknanema á deild
- Íslenskt ljósmóðurleyfi
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að vinna í teymi
- Góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
- Reynsla af ljósmóðurstörfum er kostur
- Reynsla af hjúkrunarstörfum er kostur
- Mjög góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta,, ljósmóðir