Sjúkraliði á hjartarannsóknarstofu
Laust er til umsóknar starf sjúkraliða á hjartarannsóknarstofu Landspítala. Um er að ræða 50-100% starf í dagvinnu og er starfið laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Við sækjumst eftir metnaðarfullum sjúkraliða með góða samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum til að sinna hjartalínuritum og Holter-rannsóknum með megin starfsstöð á Landspítala við Hringbraut. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Taka hjartalínurit
- Umsjón með holter-rannsóknum, setja tæki á og taka þau af eftir rannsókn
- Þátttaka í öðrum verkefnum á hjartarannsókn eftir nánari ákvörðun stjórnanda
- Íslenskt starfsleyfi sjúkraliða
- Sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfileikar
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sjúkraliði
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5