Sérhæfður starfsmaður til fjölbreyttra starfa á skurðstofum Fossvogi
Við óskum eftir að ráða jákvæðan, áreiðanlegan og þjónustulipran einstakling með ríka samskipta- og samstarfshæfni til starfa á skurðstofur í Fossvogi. Starfið er fjölbreytt og felst m.a. í ræstingu á skurðstofum og vöknun, flutningum sjúklinga frá legudeildum í aðgerðir og umsjón með kaffistofu starfsmanna.
Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu og er lágmarksaldur umsækjanda 18 ár. Unnið er á vöktum, alla virka daga, og bakvaktir um helgar. Starfið er laust frá 1. mars 2025 eða eftir nánari samkomulagi.
Á deildinni eru 8 skurðstofur sem þjóna 5 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 6000 aðgerðir. Þar starfa um 90 manns, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæfðir starfsmenn við fjölbreytt og krefjandi verkefni, í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum.
Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi. Í boði er einstaklingsaðlöguð þjálfun eftir þörfum hvers og eins á skemmtilegum vinnustað.
- Ræsting á skurðstofum
- Flutningur sjúklinga frá legudeildum í aðgerðir á skurðstofum
- Þrif og umhirða á kaffistofu starfsmanna
- Frágangur og pantanir á líni, eldhúsvörum og öðrum aðföngum
- Sækja mat fyrir starfsfólk í matsal
- Önnur tilfallandi störf í samráði við deildarstjóra
- Rík þjónustulund
- Vandvirkni skipulögð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
- Sjálfstæði í starfi
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Hæfni til að vinna í teymi
- Góð íslenskukunnátta er áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérhæfður starfsmaður, starfsmaður
Tungumálahæfni: íslenska 4/5