Yfirlæknir innkirtla- og efnaskiptalækninga
Starf yfirlæknis innkirtla- og efnaskipalækninga á bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítala er laust til umsóknar. Við innkirtla- og efnaskiptalækningar á Landspítala starfar öflugur hópur sérfræðilækna í samvinnu við aðra faghópa að málefnum fólks með innkirtlasjúkdóma. Teymið telur í heild um 20 einstaklinga sem starfa saman við göngudeild og rannsóknareiningu á Landspítala.
Leitað er eftir sérfræðilækni með mikla samskiptafærni og hæfni til að vinna í þverfaglegu teymi. Yfirlæknir er víðsýnn leiðtogi sem þarf að hafa breiða klíníska og akademíska hæfni en hann ber einnig þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og rekstrarábyrgð. Næsti yfirmaður er forstöðulæknir bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu. Starfið er unnið í nánu samstarfi við forstöðulækni og framkvæmdastjóra og annað samstarfsfólk.
Umsækjandi ætti að hafa skýra framtíðasýn sem er í samræmi við markmið stofnunarinnar. Unnið er í nánu samstarfi við næstráðandi stjórnunarteymi og annað starfsfólk við áframhaldandi uppbyggingu mannauðs. Kostir eru skipulagshæfileikar, stefnumótandi hugsun og áhugi á nýsköpun sem stuðli að áframhaldandi umbótum, gæðaþróun, vísindastarfi og þjónustu við sjúklinga.
Gerð er krafa um helgun í starfi yfirlæknis. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. apríl 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
- Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun innkirtla- og efnaskiptalækninga við sjúkrahúsið, þ.m.t. kennslumál og vísindastarf
- Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði einingarinnar
- Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á einingunni
- Skipulag og samþætting klínískrar þjónustu við kennsluhlutverk stofnunarinnar
- Framfylgir stefnumótun og áherslum framkvæmdastjórnar
- Íslenskt sérfræðileyfi í lyflækningum með innkirtla- og efnaskiptalækninga sem undirsérgrein
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
- Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar með skýrri sýn til framtíðar
- Færni í stjórnunarhlutverki, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð
- Reynsla af kennslu og vísindastörfum
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum
- Afrit af lækninga- og sérfræðileyfum sem og vottuð afrit af erlendum leyfum (ef við á)
- Staðfesting á læknis-, stjórnunar- og kennslustörfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af læknis-, kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis skal fylgja með umsókn. Umsækjandi sækir skjalið hér og vistar, fyllir það út og sendir með umsókn
- Kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni
Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar lækna skv. 36. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, sem hefur aðsetur hjá Embætti landlæknis. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim auk mati stöðunefndar á innsendum umsóknargögnum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Yfirlæknir, sérfræðilæknir, stjórnunarstarf
Tungumálahæfni: íslenska 4/5,