Yfirlæknir brjóstaskurðlækninga
Starf yfirlæknis brjóstaskurðlækninga á hjarta-, augn- og krabbameinsþjónustu Landspítala er laust til umsóknar.
Yfirlæknir er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi; þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og rekstrarábyrgð. Auk þess gegnir yfirlæknir mikilvægu hlutverki í kennslumálum og uppbyggingu vísindastarfs.
Leitað er eftir sérfræðilækni með reynslu og hæfni til að vera í forystu fyrir þjónustu við sjúklinga, umbótastarf, öryggismál og uppbyggingu mannauðs. Starfið er unnið í nánu samstarfi við forstöðulækni og framkvæmdastjóra hjarta-, augn- og krabbameinsþjónustu, yfirlækni og deildarstjóra Brjóstamiðstöðvar og annað starfsfólk.
Næsti yfirmaður er forstöðulæknir hjarta-, augn- og krabbameinsþjónustu. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. maí 2025 eða eftir nánara samkomulagi. Gerð er krafa um helgun í starfi yfirlæknis.
- Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun brjóstaskurðlækninga, þ.m.t. kennslumál og vísindastarf
- Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði einingarinnar
- Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á einingunni
- Klínísk vinna sérfræðilæknis
- Samstarf innan og utan stofnunar með teymisvinnu í þágu sjúklinga að leiðarljósi
- Framfylgir stefnumótun og áherslum framkvæmdastjórnar
- Íslenskt sérfræðileyfi í almennum skurðlækningum
- Íslenskt sérfræðileyfi í brjóstaskurðlækningum
- Færni í stjórnunarhlutverki, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð
- Umtalsverð færni og virkni á sviði brjóstaskurðlækninga
- Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar
- Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
- Reynsla af kennslu og vísindastörfum og sýn til framtíðar á þeim sviðum
- Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum.
- Afrit af lækninga- og sérfræðileyfum sem og vottuð afrit af erlendum leyfum (ef við á).
- Staðfesting á læknis-, stjórnunar- og kennslustörfum.
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af læknis-, kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum.
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed.
- Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis skal fylgja með umsókn. Umsækjandi sækir skjalið hér, vistar það, fyllir út og sendir með umsókn.
- Kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni.
Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar lækna skv. 36. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, sem hefur aðsetur hjá Embætti landlæknis. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim auk mati stöðunefndar á innsendum umsóknargögnum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta: yfirlæknir, sérfræðilæknir
Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 5/5