Hjúkrunarnemar á 3. og 4. ári takið eftir; skemmtileg störf í boði á meltingar- og nýrnadeild
Langar þig í skemmtilegt starf þar sem er styðjandi starfsumhverfi og góður starfsandi ríkir og þar sem virðing, jákvæðni og samvinna eru höfð í fyrirrúmi?
Við leitumst eftir að ráða drífandi hjúkrunarnema á 3. og 4 ári til starfa með okkur á meltingar og nýrnadeild. Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag eftir samkomulagi. Við gerum okkar besta til þess að taka tillit til námstíma og prófa við skipulagningu vakta.
Ráðið er í störfin sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Hjúkrunarnemar fá markvissan stuðning frá reyndum hjúkrunarfræðingum samhliða starfi á deildinni.
Möguleiki er á sumarstarfi í framhaldinu.
Meltingar- og nýrnadeild er 19 rúma bráðalegudeild og sinnir sjúklingum með bæði bráða og langvinna sjúkdóma í meltingarfærum og nýrum auk annarra sjúkdóma á sviði bráðra lyflækninga. Við leggjum mikla áherslu á að skapa uppbyggjandi starfsumhverfi og veitum sjúklingum okkar einstaklingsmiðaða hjúkrun.
Á deildinni starfar áhugasamur hópur margra starfstétta s.s. lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og heilbrigðisritara, auk stoðstétta sem sinna sjúklingum í samvinnu við starfsfólk deildarinnar s.s. sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa. Á deildinni er lögð áhersla á öryggi sjúklinga og starfsfólks, samvinnu teyma og stöðugar umbætur.
Við leggjum áherslu á að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og veita góða og markvissa aðlögun.
- Hlutverk og ábyrgð er í samræmi við starfslýsingar hjúkrunarnema eftir lengd náms
- Hjúkrun sjúklinga í samvinnu við aðra fagaðila
- Þátttaka í teymisvinnu
- Staðfesting á námi í hjúkrunarfræði
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni
- Sveigjanleiki í starfi
- Íslenskukunnátta
- Stundvísi
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarnemi, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 3/5