Sjúkraliði - hlutastarf á dagdeild lyflækninga Fossvogi
Við auglýsum eftir sjúkraliða í okkar góða hóp á A3, dagdeild lyflækninga Fossvogi. Á dagdeildinni fara fram sérhæfðar lyfjagjafir, m.a. gjöf mótefna og líftæknilyfja fyrir tauga-, ónæmis- og lungnasjúklinga. Dagdeildin tilheyrir göngudeild lyflækninga.
Á dagdeild lyflækninga starfa hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og ritari. Vinnuandinn einkennist af samvinnu, lipurð, stuðningi, metnaði og góðum liðsanda. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun með reyndum sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum.
Starfshlutfall er 50-70% og er upphaf starfa 1. mars 2025 eða samkvæmt samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Undirbúningur fyrir lyfjagjöf í samvinnu við hjúkrunarfræðinga
- Eftirlit með sjúklingum í lyfjagjöf
- Fræðsla og stuðningur við sjúklinga og aðstandendur
- Þátttaka í gæðastarfi og þróun þjónustu innan einingar
- Önnur verkefni á deild í samráði við deildarstjóra
- Íslenskt starfsleyfi
- Skipulögð, sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
- Íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5,